Á hinu árlega jólabókahitti Femínistafélags Íslands munu fjórar Kristínar lesa upp úr nýútkomnum verkum sínum. Frjáls framlög í kaffisjóð munu renna óskipt til Kristínarhúss, sem er athvarf Stígamóta fyrir konur á leið úr vændi/mansali.
Kristín Eiríksdóttir les upp úr Hvítfeld – fjölskyldusaga, Kristín Ómarsdóttir les upp úr Millu, Kristín Steinsdóttir les upp úr Bjarna-Dísu og Kristín Tómasdóttir les upp úr Stelpur geta allt.
Kristínarupplesturinn á jólabókahitti verður haldinn að Hallveigarstöðum við Túngötu fimmtudagskvöld 13. desember kl. 20:00.
Piparkökur og létt jólastemmning, öll velkomin.