Í Morgunblaðinu þann 12.12 er að finna aðsenda grein frá Guðna Ágústssyni, fyrrverandi alþingismanni og ráðherra, þar sem hann skrifar um sjálfsævisögu Svavars Gestssonar Hreint út sagt.
Í greininni talar hann um pólitískan feril Svavars á einlægan hátt og er stutt í húmorinn. Hann talar einkar vel um bókina og segir m.a.: „Það er bœði fróðlegt og skemmtilegt að lesa ævisögu Svavars Gestssonar – vel skrifuð bók sem grípur mann frá upphafí til enda.“ Að lokum segir hann að bókin sé saga „alþýðumanns sem kemst ungur fremstu víglínu íslenskra stjórnmála og verður þar fyrirferðarmikill og áhrifamikill.“
Skemmtileg grein eftir Guðna þar sem hann deilir með lesendum reynslu sinni og sýn á stjórnmálamanninn og persónuna Svavar Gestsson.