Gunnar Theodor Eggertsson

Stórskemmtileg, spennandi og frumleg

Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar um Steinskrípin eftir Gunnar Theodór Eggertsson í Fréttablaðið í dag, hælir í hástert og gefur fjórar stjörnur.

Brynhildur er vel lesin í furðubókmenntum af öllu tagi og var meðal annars frummælandi á furðusagnaþingi sem haldið var í Norræna húsinu fyrir skemmstu. Í ljósi þess er gaman að sjá hvað henni þótti Steinskrípin nýstárleg saga: „Það er ekki oft sem ævintýrasögur koma mér á óvart, en Gunnari tókst það svo sannarlega hér. Bókin er mun betri en Steindýrin, þéttari og betur skrifuð. Söguþráðurinn er fléttaður úr minnum úr íslenskum þjóðsögum, erlendum hrollvekjum, framtíðarsögum, geimverutryllum og galdrasögum 17. aldarinnar, og afraksturinn er alveg einstaklega skemmtilegur. Ævintýrið um Berg, Hlín og steinskrípin er bæði kunnuglegt og afskaplega frumlegt.“

Niðurstaða umfjöllunarinnar er á þessa leið: „Stórskemmtileg, spennandi, frumleg og hrollvekjandi saga sem vekur upp siðferðislegar spurningar um tengsl mannsins við náttúruna.“

INNskráning

Nýskráning