Matreiðslubókahöfundar

Gourmand matreiðslubækur

Fjórar bækur Forlagsins fengu fimm Gourmand-tilnefningar í ár. Gourmand-verðlaunin 2012 verða veitt í París í febrúar en um þau keppa matreiðslubækur frá öllum heimshornum.

Hjónin Gísli Egill og Inga Elsa fengu svoleiðis tilnefningaregnið yfir sig. Nýja bókin, Eldað og bakað í ofninum heima fékk tvær tilnefningar og þar á meðal í flokki bestu matreiðslubókanna sem er mikil viðurkenning. Einnig var hún tilnefnd í flokknum einfaldar uppskriftir. Önnur bók eftir hjónin, Into the North, fékk tilnefningu sem besta þýdda bókin.

Nanna Rögnvaldardóttir fékk tilnefningu fyrir bók sína Múffur í hvert mál í flokki brauðuppskrifta og Sólveig Eiríksdóttir fékk tilnefningu í flokki grænmetisrétta fyrir bók sína Eftirréttir Sollu.

Það er ekki að spyrja að kræsingunum!


INNskráning

Nýskráning