Þrír af höfundum Forlagsins lesa upp á Gljúfrasteini næstkomandi sunnudag. Auður Jónsdóttir les upp úr Ósjálfrátt, Eiríkur Örn les upp úr Illsku og Þórarinn Eldjárn upp úr Hér liggur skáld. Auk þeirra mun Auður Ava lesa upp úr skáldsögu sinni.
Það er orðið jólalegt á Gljúfrasteini, búið að dekka borð í borðstofunni og draga fram jólakortin. . Upplestrarnir hefjast stundvíslega klukkan 16 á sunnudag og aðgangur er ókeypis.