Íslensku bókmenntaverðlaunin - tilnefning

Fimm tilnefningar hjá Forlaginu

Það var mikil gleði hjá Forlagsmönnum á laugardaginn þegar fjórar af bókum þeirra voru tilnefndar til íslensku bókmenntaverðlaunanna, tvær í hvorum flokki. Í flokki fagurbókmennta fengu Illska Eiríks Arnar Norðdahl og Milla Krístínar Ómarsdóttur tilnefningu og kom það fáum á óvart því þær hafa fengið gríðarlega góðar undirtektir gagnrýnenda og almennra lesenda. Meðal annars sagði Þröstur Helgason í Kiljunni að það væri spurning hvort hann ætti eftir að lesa betri skáldsögu en Illsku á þessari vertíð og bókin fékk fullt hús stjarna í Fréttablaðinu. Milla hefur sömuleiðis fengið mikið stjörnuregn og hrós fyrir hugmyndaauðgi, frumleika og fjör.

Í flokki fræðirita og bóka almenns efnis hlutu tilnefningu hið mikla rit Jóns Ólafssonar Appelsínur frá Abkasíu, um Veru Hertzsch, Halldór Laxness og hreinsanirnar miklu, og Upp með fánann, bók Gunnars Þórs Bjarnasonar um uppkastið 1908 og sjálfstæðisbaráttu Íslendinga. Báðar hafa fengið afar góð viðbrögð gagnrýnenda og annarra ánægðra lesenda.

Auk þess var Sigrún Árnadóttir tilnefnd til þýðingarverðlauna fyrir endursköpun sína á bókum Gunillu Bergström um Einar Áskel á íslensku og var henni fagnað innilega þegar hún tók við tilnefningunni. Líklega hefur enginn í salnum verið ókunnugur þessum frábæru bókum sem hafa skemmt íslenskum lesendum í áratugi.

Forlagið óskar Eiríki Erni, Kristínu, Jóni, Gunnari Þór og Sigrúnu innilega til hamingju með þennan verðskuldaða heiður.

INNskráning

Nýskráning