„Án Sigurðar Pálssonar væri íslenskur bókmenntaheimur mun fátæklegri,“ segir Vera Knútsdóttir í afar jákvæðum ritdómi á vefnum bokmenntir.is um nýja ljóðabók Sigurðar, Ljóðorkulind. Sigurð Pálsson þarf vart að kynna, svo öflugur sem hann hefur verið í íslenskum bókmenntaheimi. Ljóðorkulind er sú þriðja af „ljóðorkubókum“ hans, hinar eru Ljóðorkusvið (2006) og Ljóðorkuþörf (2009).
Eins og Vera orðar þetta er Sigurður afkastamikill höfundur, „Sigurður Pálsson er orkumikill yrkir sem mjög greinilega blossar af ljóðorku, og lindin vísar í uppsprettu skáldskaparins, hvaðan ljóðin koma og ekki síst hvaðan þörfin til að yrkja kemur. Og eins og titilljóðið sem jafnframt er fyrsta ljóð bókarinnar ber vitni um er afskaplega erfitt að temja þessa orku því hún vellur fram eins og úr vatnsuppsprettu,“
Hlýðir aldrei fyrirskipunum
Sprettur fram skyndilega
Sprettur upp
Sprettur beint út
úr klettinum
mosagrónum klettinum
Sprettur upp fyrirvaralaust
í miðri setningu
á miðju salargólfi
miðri götu