Eiríkur Örn Norðdahl

Illska á Súfistanum

Illska eftir Eirík Örn Norðdahl hefur fengið gífurlega góða dóma og stjörnuregn á öllum helstu fjölmiðlum síðustu vikurnar. Bókin hefur vakið áhuga, eftirtekt og spurningar.

Á morgun, þriðjudag, mun Jón Yngvi Jóhannsson bókmenntafræðingur ræða skáldverkið við Eirík Örn á Súfistanum í Bókabúð Máls og menningar. Höfundarkvöldið hefst kl. 20, það er ókeypis aðgangur og allir eru velkomnir.

Dæmi um dóma sem Illska hefur fengið:

*****
„Klikkuð bók. Lesið hana! … Fróðleg, skemmtileg, sorgleg og fyndin.

Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir / Fréttablaðið

„Þetta er dúndur!“
Egill Helgason / Kiljan

„Spurning hvort maður eigi eftir að lesa betri skáldsögu í haust …“
Þröstur Helgason / Kiljan

****
„Sem pólitískt verk er Illska hreint stórvirki … Allir þeir sem vilja horfast í augu við sannleikann um Ísland og heiminn sem er allt í kring verða hreinlega að lesa. Eftir það getum við byrjað að tala saman.“

Jón Bjarki Magnússon / DV

INNskráning

Nýskráning