Jólin koma – kverið með jólasveinavísunum hans Jóhannesar úr Kötlum prýtt teikningum Tryggva Magnússonar – þekkja allir. Hún kom fyrst út fyrir áttatíu árum og hefur frá upphafi verið ómissandi hluti af jólahaldi landsmanna. Í umfjöllun um bókina í barnablaðinu Sunnu haustið 1932 segir: „„Jólin koma“ heitir bók, sem er að koma út núna fyrir jólin. Það er ein allra prýðilegasta barnabók, sem íslenzk börn eiga völ á, enda hafa tveir kunnir og snjallir listamenn lagt saman að gera hana úr garði … Sunna vonar, að mörg börn njóti þeirrar gleði, að fá hana í jólagjöf.“
Sunnu varð heldur betur að ósk sinni því óhætt er að fullyrða að Jólin koma er ein söluhæsta bók sem út hefur komið á íslensku. Í tilefni af áttatíu ára útgáfuafmæli hennar kemur hún nú út í sérstakri hátíðarútgáfu. Fyrir hana voru teikningar Tryggva Magnússonar myndaðar að nýju og hafa aldrei verið prentaðar jafnskýrt og nú. Einnig er hún í örlítið stærra broti en áður og fallega innbundin. Hátíðarútgáfan er 27. prentun af vísunum góðu sem hafa komið Íslendingum í jólaskap í áttatíu ár.