Í dag kemur út ný bók undir merkjum Íslensku barnabókaverðlaunanna: Hrafnsauga eftir Kjartan Yngva Björnsson og Snæbjörn Brynjarsson. Þetta er fyrsta bók höfundanna og jafnframt fyrsta bókin í sagnaflokknum Þriggja heima sögu. Að mati dómnefndar er Hrafnsauga „spennandi og frumleg saga þar sem áhugaverðar persónur takast á við krefjandi aðstæður í vel sköpuðum ævintýraheimi.“
Kjartan og Snæbjörn eru báðir 28 ára og félagar frá því úr menntaskóla, Kjartan er bókmenntafræðingur og nemi í ritlist og Snæbjörn leikskáld og nemi í japönsku.
Að Íslensku barnabókaverðlaununum standa auk Forlagsins fjölskylda Ármanns Kr. Einarssonar, Barnavinafélagið Sumargjöf og IBBY á Íslandi og skipa fulltrúar þessara aðila dómnefnd. Á lokasprettinum bættust svo tveir nemendur úr Austurbæjarskóla í hópinn. Árlega er auglýst eftir handritum í samkeppnina og í ár bárust 63 handrit í keppnina, verðlaunaféð er 500.000 krónur. Næsti skilafrestur handrita er 1. febrúar 2013.