Arnaldur Indriðason

Arnaldur í fyrsta sæti

Arnaldur Indriðason skaust strax í fyrsta sæti á metsölulista Félags íslenskra bókaútgefenda með bók sína Reykjavíkurnætur. Bókin var aðeins búin að vera í sölu í þrjá daga þegar listinn var tekinn saman en samt sem áður er hún mest selda bók landsins síðustu tvær vikurnar.

Bóksalar landsins hafa stillt upp bókinni á frumlegan og glæsilegan hátt eins og sjá má hér á þessum myndum. Bóksalar taka þátt í keppni í bestu framstillingu á bókinni og er óhætt að segja að metnaðurinn sé gífurlegur.




INNskráning

Nýskráning