Það verður sannkölluð veisla fyrir konur á öllum aldri föstudaginn 2. nóvember klukkan 20 í Bókabúð Forlagsins Fiskislóð 39. Þá verður haldið konukvöld Forlagsins og Smartlands þar sem verða gjafir, smakk, léttar veitar, ljúfir tónar og skemmtilegt fólk!
Sjarmatröllin Arne og Carlos kynna nýútkomna bók sína Jólakúlur og spjalla um hönnun sína og prjónalist. Nanna Rögnvaldardóttir, Solla Eiríksdóttir og Inga Elsa Bergþórsdóttir gæla við bragðlaukana með smakki úr nýjum matreiðslubókum sínum.
Sérstakur barnabókaráðgjafi verður á svæðinu og jólabækurnar verða á frábæru verði.
Lyftu þér upp og leyfðu okkur að dekra við þig!