Gerður Kristný

Ljóð um börn

Í sunnudagsmogganum fjallar Kolbrún Bergþórsdóttir um nýja ljóðabók Gerðar Kristnýjar, Strandir, og þá sérstaklega ljóðið Ljóð um börn sem er að finna í bókinni.

Ljóðið fjallar m.a. um Þórð Kárason, sem Njáll og Bergþóra fóstra í Njálu. Drengurinn deyr með Njáli og Bergþóru eftir að þau hafa öll lagst undir uxahúð og er dauði þessa drengs ein af mörgum harmsögum sem segir frá í Njálu.

Kolbrún skrifar: „Þórður er ekki eina barnið sem kemur fyrir í ljóðinu en hann hefur þar ábyrgðarmikið hlutverk sem opinberast í undurfallegum angurværum lokaorðum. Það er erfitt að útskýra nákvæmlega hvað það er sem gerir að verkum að ákveðin ljóð verða manni kær … Ljóðabókin Strandir er enn ein sönnun þess hversu gott ljóðskáld Gerður Kristný er. Þeir sem kvarta undan því að nútímaljóðagerð höfði ekki til þeirra eru sennilega ekki að lesa réttu ljóðabækurnar. Þeir ættu að ná sér í Strandir og njóta.“

INNskráning

Nýskráning