Kaaberbol og Friis

Frábærir dómar!

Nýja bók höfundaparsins danska, Kaaberböl og Friis, hefur fengið gríðarlega fína dóma síðustu dagana. Bókin, Dauði næturgalans, fjallar um hjúkrunarkonuna Ninu Borg eins og fyrri bækur höfunda. Nina Borg er einstök persóna, hjúkrunarkona sem hefur heiminn á herðum sér og leggur lífið í sölurnar til að bjarga þeim sem minna mega sín.

Dauði næturgalans er margslungin og mannleg spennusaga með skemmtilegum vísunum í söguna og gagnrýnendur eru á sama máli.

Bókin hefur fengið fjórar stjörnur hjá tveimur gagnrýnendum og talað er um Ninu Borg sem áhugaverðustu söguhetju norrænna glæpasagna um þessar mundir. Ennfremur er talað um bókina sem fyrsta flokks afþreyingu og áhugaverða lesningu.

Fyrri bækur höfundaparsins um Ninu Borg eru Barnið í ferðatöskunni og Hægur dauði.

INNskráning

Nýskráning