Nýlega kom út ný ljóðabók, Rómantískt andrúmsloft, eftir Braga Ólafsson. Baldur A. Kristinsson gefur bókinni fjórar stjörnur í dómi sínum í Morgunblaðinu sl. sunnudag.
Baldur segir eitt megineinkenni ljóða Braga vera hvernig þau tjá hið samsetta, margræða og stundum mótsagnakennda eðli vitundarinnar. Baldur kemst að þeirri niðurstöðu að Bragi sé ögn alvarlegri og djúphugulli en áður í verkum sínum en segir þó að lágstemmda kímnin og hið óvenjulega sjónarhorn Braga sé til staðar.
Besta ljóð bókarinnar að mati Baldurs er Að hugsa sér sem hér fylgir með, lesendum til yndisauka.
Að hugsa sér
Í nokkur ár
hef ég haft í höfðinu
mynd af þorpi sem ekki er til
annars staðar.
Og yfir þorpinu
fljúga nokkrir mávar,
og hljóðin sem þeir senda frá sér
segja allt um svona þorp
sem maður þarf að vita.
Að hugsa sér:
það þarf ekki meira
en hljóð úr nokkrum fuglum
til að allt fari af stað
og allt stöðvist:
að myrkrið sem grúfir yfir
verði að engu.