Laugardaginn, 2. júní, býður Forlagið upp á ferðaveislu í Bókabúð Forlagsins á Fiskislóð 39. Þá verður Ferðadagur fjölskyldunnar haldinn hátíðlegur með pompi og prakt.
Grillilmurinn mun svífa yfir Fiskislóðinni þegar grillmeistari Forlagsins kyndir upp í kolunum og býður gestum og gangandi upp á ljómandi grillpylsur. Með tómatsósu út á kinn geta börnin síðan skellt sér í hoppukastala og fengið góða útrás þar. Einnig kemur strumpur á svæðið og heilsar upp á gesti. Maxímús Músíkús, músin tónelska, ætlar líka að sýna krökkunum allt sem hann hefur lært um ballett.
Á meðan krakkarnir skemmta sér getur fullorðna fólkið skoðað frábært úrval ferðahandbóka í Bókabúð Forlagsins sem verða á sérstöku ferðatilboði. Hvort sem stefnan er tekin á fjallgöngur, lautartúra, hringferð um landið eða kúra í sumarbústað er fullvíst að þú finnur bók við hæfi. Nýútgefin Ferðaatlas Máls og menningar verður einnig á kynningartilboði þennan eina dag.
Í Bókabúð Forlagsins á Fiskislóð er einnig stærsta kortadeild landsins með öllum mögulegum útgáfum af kortum í alls kyns stærðum og gerðum. Kortasérfræðingarnir Örn Sigurðsson og Hans H. Hansen verða á staðnum til skrafs og ráðagerða. Þú ættir svo sannarlega ekki að týnast í sumarfríinu þínu.
Komdu þér í rétta gírinn fyrir ferðalög sumarsins á Ferðadegi fjölskyldunnar á laugardaginn í blíðu og grillstuði.