Það er ekki skortur á spennu og tryllingi í bókmenntunum en nýlega komu út þrjár gæða spennusögur hjá Forlaginu.
Lærlingurinn kemur hrolli í hörðustu lesendurna og er best lýst þannig að fólk ætti að læsa að sér og spæna hana í sig. Þetta er svo sannarlega bók sem fær taugarnar til þess að titra. Dauði næturgalans er þriðja bókin frá höfundaparinu Kaaberbøl og Friis sem fjalla um hjúkrunarkonunu Ninu Borg. Nina Borg lendir í æsilegri atburðarás og með margslunginni sögufléttu heldur bókin lesandanum þar til allt smellur saman. Feluleikur kemur úr smiðju meistara Patterson – klassísk spennusaga sem býður upp á dramatísk átök og óbærilega spennu.
Þeir sem vilja spennu og æsilega fléttu verða ekki fyrir vonbrigðum með þessar þrjár!