Það ætti ekki að hafa farið framhjá mörgum að í sumar verða Ólympíuleikarnir haldnir í London. Á sama tíma verða haldnir Ólympíuleikar í ljóðlist og Gerður Kristný verður fulltrúi Íslands þessari stærstu ljóðahátíð Bretlands í sumar. Á hátíðinni verður einn fulltrúi, eitt skáld, frá hverju Ólympíulandi og þar á meðal tvö nóbelskáld og fleiri kanónur.
Gerður Kristný hefur vakið mikla athygli með ljóðabókum sínum, hefur hlotið margs konar viðurkenningar, fengið Íslensku bókmenntaverðlaunin og var nú síðast tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs fyrir ljóðabók sína Blóðhófnir. Hún er því aldeilis verðugur fulltrúi Íslands á Ólympíuleikum í ljóðlist og fær styrk til ferðarinnar frá Valitor eins og aðrir Ólympíufarar frá Íslandi í ár.
Kastljós spjallaði við Gerði Kristnýju um ólympíska lágmarkið og ljóðlistina.