Skrímslahöfundar að störfum

Það er alltaf mikill viðburður þegar höfundar bókanna um stóra og litla skrímslið hittast til að vinna að nýrri bók. Ástæðan er sú að einn býr í Reykjavík, annar í Þórshöfn í Færeyjum og sá þriðji í Mobacken í Svíþjóð. Samstarfið hófst í norrænum rithöfundabúðum í Svíþjóð fyrir bráðum tíu árum en síðan hafa þau hist reglulega í heimalöndum allra höfundanna, og nú síðast héldu þau þriggja daga vinnubúðir í Melasveitinni þar sem þau lögðu drög að þremur nýjum sögum um þessar vinsælu persónur. Í sömu ferð gafst erlendu höfundunum tækifæri til að sjá skrímslin á sviði Þjóðleikhússins þar sem þau njóta mikilla vinsælda.

Von er á nýrri bók um skrímslin seinna á þessu ári og mörgum í viðbót á næstu árum ef vinnubúðirnar hafa skilað tilætluðum árangri.

INNskráning

Nýskráning