Bókin Hetjur og hugarvíl – geðsjúkdómar og persónuraskanir í Íslendingasögum kom út í vikunni en höfundur hennar er geðlæknirinn Óttar Guðmundsson. Í bókinni leggjast helstu persónur Íslendingasagnanna á bekkinn hjá geðlækninum og segja frá lífi sínu, hörmum og erfiðleikum. Í kjölfarið greinir geðlæknirinn persónurnar og veltir fyrir sér hvernig líf þeirra væri í nútímanum; væri Njáll alþingismaður? Væri Grettir Ásmundsson handrukkari?
Óttar var í skemmtilegu viðtali hjá Agli Helgasyni í Kiljunni í vikunni og var Egill afar hrifinn af bókinni. Sagði Egill að þetta væri „einhver æsilegasti texti“ sem hann hafi lesið í vetur og endaði viðtalið á því að segja að bókin væri „hrikalega skemmtileg.” Skemmtileg bók fyrir alla unnendur Íslendingasagnanna, sálfræði, pælinga um manninn og tilveruna. Já, bara fyrir alla.