Í dag kom Einvígið, nýjasta bók Arnaldar, út í kilju. Einnig voru þrjár eldri bækur úr seríunni um Erlend og félaga endurútgefnar en þær hafa verið ófáanlegar lengi. Þessar fjórar bækur koma út í nýju og fersku útliti. Mörgum gæti þótt skemmtileg nýjung að káputextinn er framan á kápunni og litirnir eru í ferskum neontón.
Bækurnar sem voru endurútgefnar í dag eru fyrsta bókin um Erlend lögreglumann, Synir duftsins, ásamt Dauðarósum og Röddinni.