Gerður Kristný verður næstu tvær vikurnar í góðum félagsskap skálda víðs vegar úr heiminum á upplestraflakki um Indónesíu. Á ferðalagi skáldanna verður lesið upp úr ljóðabókum þeirra, rætt um ljóðlist og tekur Gerður Kristný verðlaunabók sína, Blóðhófni, með í för.
Gerður Kristný var beðin um að taka þátt í verkefninu þegar hún var á bókmenntahátíðinni í Berlín í fyrra. Þar hitti hún einn stjórnanda indónesísku hátíðarinnar sem var afar spennt fyrir goðsögunni um frjósemisguðinn Frey og Gerði Gymisdóttur sem fjallað er um í Blóðhófni.