Jonas Jonasson

Gamlinginn á hvíta tjaldið

Kvikmynd byggð á metsölubókinni, Gamlinginn sem skreið út um gluggann og hvarf, er í undirbúningi í Svíþjóð en það er Sigurjón Sighvatsson sem framleiðir myndina. Vinsældir bókarinnar eru gífurlegar og því líklega margir sem hlakka til að sjá söguna á hvíta tjaldinu þegar þar að kemur.

Á Íslandi hefur Gamlinginn setið í efstu sætum metsölulista frá því að bókin kom út og er mest selda bókin á Íslandi árið 2011. Bókin er einnig vinsæl í öðrum löndum og hefur selst samtals í tveimur milljónum eintaka víðs vegar um heiminn. En sigurgöngunni er ekki lokið. Í sumar verður þessi stórskemmtilega bók gefin út í Bretlandi og Bandaríkjunum og er nokkuð víst að hún muni ferðast enn víðar eftir þá útgáfu.




INNskráning

Nýskráning