hungurleikar-kvikmynd

Hungurleikarnir í rafbók!

Ein vinsælasta bókin á Íslandi í dag, Hungurleikarnir, er komin í rafbók. Þeir sem kjósa frekar að lesa þessa æsispennandi sögu á rafrænu formi geta nú nælt sér í eintak í vefverslun Forlagsins, á einfaldan og þægilegan hátt.

Hungurleikarnir hafa setið í fyrsta sæti metsölulista Eymundsson yfir barna- og unglingabækur síðustu vikurnar. Gagnrýnendur hafa einnig lofað bókina í hástert og bent á að bókin sé tilvalin til að virkja ungt fólk til að lesa meira. Það má með sanni segja að Hungurleikjaæði hafi gripið landann, bæði yngri og eldri lesendur.


INNskráning

Nýskráning