Einar Már

Til hamingju, Einar Már!

Í morgun tilkynnti Sænska akademían að Einar Már Guðmundsson fái Norrænu bókmenntaverðlaunin í ár fyrir framlag sitt til bókmennta. Einar Már mun veita verðlaununum viðtöku í Stokkhólmi 11. apríl nk.

Norræn bókmenntaverðlaun Sænsku akademíunnar hafa verið veitt árlega frá 1986. Þau þykja einhver mesti heiður sem norrænum rithöfundi getur hlotnast og eru gjarnan nefnd norrænu nóbelsverðlaunin eða „litli Nóbelinn“.

Einar Már Guðmundsson er þriðji Íslendingurinn sem hlýtur verðlaunin, Thor Vilhjálmsson fékk þau árið 1992 og Guðbergur Bergsson árið 2004.

Einar Már er fjölhæfur höfundur sem hefur sent frá sér skáldsögur, smásögur og ljóð en einnig hugleiðingar um samfélagsmál og menningu. Eitt þekktasta verk Einars Más er skáldsagan Englar alheimsins sem samnefnd kvikmynd er byggð á og nýjasta verk Einars er bókin Bankastræti núll þar sem Einar hugleiðir samhengi þjóðlífsins og menningar með sögum úr veruleikanum.

Fréttatilkynning Sænsku akademíunnar

INNskráning

Nýskráning