Hin sígilda barnabók Bétveir hefur verið endurprentuð og endurbætt en bókin hefur verið ófáanleg um langt skeið. Bétveir kom fyrst út árið 1986 og markaði tímamót í útgáfu barnabóka. Bókin var ein af fyrstu íslensku barnabókunum sem kom út í fjórlit og eftir útgáfu hennar hefur Sigrún gefið út fjölda myndskreyttra barnabóka sem hafa hitt beint í mark hjá ungum lesendum.
Sagan um Bétvo fjallar um geimveru sem kemur til jarðarinnar og fær að kynnast alls kyns skrýtnum og skemmtilegum fyrirbærum; eins og ullarsokkum, heitu kakói og bókum. Dásamleg saga sem kemur nú út með spánnýjum myndum eftir höfundinn.