Í apríl verður frumsýnd ópera í finnsku Þjóðaróperunni í Helsinki sem byggð er á metsölubókinni Hreinsun eftir Sofi Oksanen.
Hreinsun, sem kom út á Íslandi árið 2010, er mest lesna finnska skáldsaga allra tíma. Bókin hefur verið þýdd á 43 tungumál og er margverðlaunuð. Hreinsun er margradda skáldsaga um reynslu fólks í Eistlandi undir hæl Sovétríkjanna en jafnframt nærgöngul lýsing á tveim konum sem eru ítrekað beygðar og niðurlægðar en rísa alltaf upp á ný.
Höfundur óperunnar, Jüri Reinvere, segir það mikilvægt fyrir Eista að horfast í augu við erfiða fortíð því einungis þannig sé hægt að leggja liðna atburði að baki sér. Hreinsun er fyrsta ópera tónskáldsins.
Fyrir síðustu jól kom út ný bók á íslensku eftir Sofi Oksanen, Kýr Stalíns, sem er fyrsta skáldsaga hennar.