Sunnudaginn 26. febrúar kl. 16 mun Jón Yngvi Jóhannsson halda fyrirlestur á Gljúfrasteini þar sem fjallað verður um samskipti Gunnars Gunnarssonar og Halldórs Laxness. Þeirra samskipti eru sett í samhengi íslenskrar bókmennta- og menningarsögu með áherslu á uppgjör Gunnars og óuppgerðar sakir við ævilok.
Fyrir jól kom út bókin Landnám – ævisaga Gunnars Gunnarssonar eftir Jón Yngva og því óhætt að segja að hann sé sérfræðingur í bæði verkum Gunnars sem og persónulegri málum hans.
Aðgangur er ókeypis og nánari upplýsingar má finna hér á heimasíðu Gljúfrasteins.