Guðbergur Bergsson

Svanurinn kemur út í Tævan

Skáldsagan Svanurinn eftir Guðberg Bergsson kom nýlega út í Tævan. Frá því að bókin kom út árið 1991 hefur hún verið lofuð og verðlaunuð úr öllum áttum.

Árið 1992 hlaut Guðbergur Bergsson Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir afrekið og var hún tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs árið eftir. Einnig var bókin tilnefnd til hinna virtu Nonino-verðlauna. Svanurinn hefur komið út á fjölda tungumála, í kilju og innbundin, og hlotið gífurlega góðar viðtökur.

INNskráning

Nýskráning