Síðustu vikuna hafa komið tveir nýir dómar um Bernskubók Sigurðar Pálssonar og er óhætt að segja að gagnrýnendur séu yfir sig hrifnir af þessari ljúfu og hrífandi bók.
Páll Baldvin Baldvinsson gefur bókinni fimm stjörnur í Fréttatímanum í síðustu viku og segir bókina vera „fallegt og hrífandi verk [fusion_builder_container hundred_percent=“yes“ overflow=“visible“][fusion_builder_row][fusion_builder_column type=“1_1″ background_position=“left top“ background_color=““ border_size=““ border_color=““ border_style=“solid“ spacing=“yes“ background_image=““ background_repeat=“no-repeat“ padding=““ margin_top=“0px“ margin_bottom=“0px“ class=““ id=““ animation_type=““ animation_speed=“0.3″ animation_direction=“left“ hide_on_mobile=“no“ center_content=“no“ min_height=“none“][sem] festist án efa bókmenntatalinu sem mikilvægt dokument um sinn tíma, þá og nú.“ Jón Agnar Ólason tekur í sama streng og segir stílinn leika í höndunum á skáldinu. Segir hann Sigurð „ ljá hversdagslegum atvikum og aðstæðum skemmtilega rómantískan blæ [og með því] lífgar hann æskuárin við án þess að missa fótanna í tilfinningaflóði eða tilgerð.“
Fyrir unnendur fallegs texta og ljúfra bernskuminninga er Bernskubók algjör skyldulesning. Bókin er nú á 58% afslætti á netmarkaði Forlagsins og því kjörið að skella sér á eintak á frábæru verði.
[/fusion_builder_column][/fusion_builder_row][/fusion_builder_container]