Þorramatur

Þorrabækur

Nú líður að þorranum og tilvalið að rifja upp skemmtilega siði og hefðir sem tengjast honum.

Í bókinni Þorrablót eftir Árna Björnsson þjóðháttafræðing er fjallað um ýmsar venjur tengdar þorranum, grafist fyrir um upphaf þessara siða og viðgang þeirra á 20. öld. Bókinni fylgir einnig viðamikill bálkur þorrakvæða með nótnaskrift.

Í bókinni Kuggur 5 – Þorrablót eftir Sigrúnu Eldjárn er einnig fjallað um þorrann en þar fær Kuggur að kynnast þorrablóti með tilheyrandi þorramat og gleði. Skemmtileg og fjörug þorrabók fyrir alla aldurshópa.

INNskráning

Nýskráning