Gerður

„Mikið ljóðrænt afrek“

Torben Wendelboe sparar ekki stóryrðin í umsögn sinni um danska þýðingu á Blóðhófni, ljóðaflokki Gerðar Kristnýjar, á danska bókasafnavefnum. Hann segir meðal annars: „Hún kýs að enduryrkja hið forna kvæði og halda sögunni áfram í knöppu formi sem er náskylt bragarháttum eddukvæða. Og árangurinn er stórkostlegur … Ljóðið birtir okkur konu sem er þvinguð til undirgefni og sýnir hvílíkan sársauka það hefur í för með sér … Þó að stíllinn sé knappur er ljóðaflokkurinn í heild áhrifamikil innlifun í huga Gerðar og harkaleg ádeila á þá heimsskipan sem brýtur hana niður, femínísk gagnrýni á ofbeldisfulla ást karlmannsins. Mikið ljóðrænt afrek. …   Verkið er sambærilegt við það allra besta sem ort er í heiminum á okkar dögum.“
Niðurstöðu sína orðar Wendelboe á þessa leið: „Frábært, frumlegt og heillandi verk eftir íslenskt ljóðskáld með gríðarlega hæfileika.“
Þýðinguna gerði Erik Skyum-Nielsen og hann skrifar einnig eftirmála að verkinu sem Wendelboe lýkur lofsorði á.

INNskráning

Nýskráning