Í dag, fimmtudag, mun fríður flokkur höfunda Forlagsins mæta í Eymundsson Kringlunni og spjalla við gesti og árita bækur sínar.
Ólafur Jóhann Ólafsson sem búsettur er í Bandaríkjunum er nú staddur á landinu og mun árita bók sína, Málverkið. Þetta verður líklega eina tækifærið til að hitta skáldið og fá áritun hans fyrir þessi jól. Ólafur Jóhann verður í Eymundsson kl. 17-18 ásamt öðru stórskáldi, Hallgrími Helgasyni, sem mun árita bók sína Konan við 1000°.
Frá kl. 18 munu þrír aðrir höfundar storma inn í Eymundsson, þetta eru þau Kristín Helga Gunnarsdóttir (Ríólítreglan), Stefán Máni (Feigð) og Jón Yngvi Jóhannsson (Landnám – ævisaga Gunnars Gunnarssonar).
Kíkið við í Eymundsson Kringlunni, spjallið við höfunda og nælið ykkur í áritun á jólabókina.