Háskólinn á Bifröst stendur fyrir hádegisfundum fyrir jólin í húsnæði sínu á Hverfisgötu 4-6, fimmtu hæð, kl. 12.00 – 13.00. Á fundunum koma nokkrir höfundar jólabóka og kynna þær og lesa upp úr þeim. Að lokum er spjallað um bækurnar, sem og rannsóknir sem lágu að baki og helstu niðurstöður.
Í hádeginu á miðvikudaginn, 14. Desember, munu tveir höfundar Forlagsins vera með bókakynningu á Hverfisgötunni. Það eru þau Sigríður Víðis Jónsdóttir með bók sína Ríkisfang: Ekkert og Einar Már Guðmundsson með bók sína Bankastræti núll.
Þetta er einstakt tækifæri til að taka smá pásu frá jólaannríkinu, fá sér kaffibolla og piparkökur og slaka á yfir notalegu bókaspjalli.
Miðvikudagur, 14. desember, kl. 12.00 – 13.00 á Hverfisgötu 4-6.