Nýjasta barnabók Gunnars Helgasonar, Víti í Vestmannaeyjum, er í efsta sæti metsölulista Eymundsson þessa vikuna. Bókin er gríðarlega vinsæl hjá krökkum á öllum aldri enda er stíll bókarinnar hress, fyndinn og grípandi – eins og höfundurinn sjálfur. Nú er fyrsta upplagið af bókinni að klárast og því hefur verið hafin endurprentun á þessari mögnuðu fótboltasögu.
Það eru fleiri en krakkar sem hafa gaman af bókinni. Fyrir utan gagnrýnendur á fjölmiðlum sem hafa gefið bókinni góða dóma, hafa ýmsir þjóðþekktir einstaklingar lesið bókina og verið mjög ánægðir með hana eins og sjá má á ummælunum hér fyrir neðan.
„Víti í Vestmannaeyjum er Barcelona barnabókmenntanna.“
Hjörvar Hafliðason, knattspyrnuspekingur
„Aldrei komst ég á Shellmót en vid lestur þessarar bókar fannst mér ég hreinlega vera á staðnum. Þetta er frábær bók!“
Gudmundur Benediktsson / íþróttafréttamaður á Stöð 2
„Víti í Vestmannaeyjum er skemmtileg, fyndin, spennandi og hreint mögnuð barnabók. Skellti oft upp úr og á von á að allir fótboltakrakkar muni skemmta sér jafn vel við lesturinn. Þá er bókin alger skyldulesning fyrir alla fótboltaforeldra um hvernig á að haga sér og ekki haga sér á hliðarlínunni!“
Katrín Jónsdóttir / Fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta