Gerdur Kristny

Ekta íslenskt erfðasilfur

Ljóðaflokkurinn Blóðhófnir eftir Gerði Kristnýju, sem fékk Íslensku bókmenntaverðlaunin í ár, kom út á dönsku í dag hjá bókaútgáfunni Vandkunsten í þýðingu Eriks Skyum-Nielsen. Thomas Bredsdorf skrifar um bókina í Politiken í dag undir fyrirsögninni „Ekta íslenskt erfðasilfur“ og gefur henni fjögur hjörtu.

Bredsdorf minnir á að þetta er ekki í fyrsta skipti sem Skírnismál verða efni í ný ljóð. Danska þjóðskáldið Adam Oehlenschläger umorti knappan texta Skírnismála yfir á orðmargan hexametra á 19. öld, „en Gerður Kristný fer allt aðra leið,“ segir Bredsdorf. „Hún er ennþá sparari á orð en fyrirmyndin. Einbeitir sér að eyðunum í frásögninni: Hvað hugsaði konan dagana níu áður en hún var tekin gegn vilja sínum? Og hvað með barnið sem áreiðanlega fæddist níu mánuðum seinna? Gerður jötnamær hugsar um móður sína á meðgöngunni. Og um framtíðina. … Margt er hægt að lesa í myrkar leifar frá fornum tíma og Gerði Kristnýju tekst vel að halda möguleikum opnum. Blóðhófnir hennar er feminískt svar við fornnorræna kvæðinu en það er líka kvæði um að munurinn á guðum og jötnum, okkur og hinum, manni og konu er ekki eins einfaldur og hann virðist vera.“

Bredsdorf hælir líka þýðingu Skyum-Nielsen, segir hana vandlega stuðlaða eins og frumtextann og fulla af eyðum sem vekja tilfinningar.

INNskráning

Nýskráning