Arnaldur Indridason

Arnaldur hlýtur heiðursverðlaun Boréales-menningarhátíðarinnar

Metsöluhöfundinum Arnaldi Indriðasyni hafa áskotnast enn ein verðlaunin á erlendri grund. Um er að ræða heiðursverðlaun menningarhátíðarinnar „Boréales/Région Basse-Normandie du Polar nordique“ sem veitt voru í fyrsta skipti þann 19. nóvember síðastliðinn í tilefni af 20 ára afmæli hátíðarinnar. Verðlaunin hlaut Arnaldur fyrir skáldsögur sínar í Frakklandi og þá sérstaklega Bettý sem kom út þar í landi hjá forlaginu Métailié í þýðingu Patricks Guelpa þann 27. október sl. og trónir nú í þriðja sæti franska metsölulistans yfir glæpasögur.

Ekkert lát er á vinsældum bóka Arnaldar og hafa þær nú selst í hátt í sjö milljónum eintaka heima og erlendis og setið ofarlega á metsölulistum í Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Hollandi, Belgíu, Þýskalandi og Frakklandi auk Íslands. Bækur hans hafa og sópað að sér verðlaunum hvarvetna og má þar nefna CWA Gold Dagger í Bretlandi, Glerlykilinn og Martin Beck-verðlaunin í Svíþjóð, Barry- og Macavity-verðlaunin í Bandaríkjunum, Grand Prix des Lectrice de Elle, Le Prix du Coeur Noir og Le Prix Mystère de la Critique í Frakklandi, og svo mætti lengi telja.

Boréales-hátíðin var haldin í Caen í Normandí dagana 3.-19. nóvember og þar var boðið upp á metnaðarfulla dagskrá úr menningarlífi Norðurlanda og Eystrasaltslanda, tónlist, kvikmyndir, leiklist, dans, myndlist og bókmenntir, auk pallborðsumræðna og upplestra. Verðlaunin sem Arnaldur hlýtur verða afhent við lok sólarhringslangrar samfelldrar dagskrár um glæpasögur.

INNskráning

Nýskráning