Kellingabaekur

Kellíngabækur í Gerðubergi

Næstkomandi laugardag, 19. nóvember, verða kynnt ný verk kvenhöfunda í Gerðubergi og stendur bókakynningin frá kl. 13 til 15. Er þetta í fjórða sinn sem ritverk kvenna eru kynnt undir yfirskriftinni Kellíngabækur og hafa fjölmargir notið kynninga og upplestra á undanförnum árum. Sem fyrr eru verkin sem kynnt verða af öllu tagi, skáldsögur, fræðirit, ljóðabækur, ævisögur og barnabækur.

Að þessu sinni verða um 40 ritverk kvenna kynnt og hafa nemendur við Háskóla Íslands umsjón með upplestri úr nokkrum þeirra. Bækurnar verða til sölu á sérstöku kynningarverði og forleggjarar kynna útgáfur sínar. Þá ilmandi kaffi og girnilegar veitingar á borðum hjá Gallerí Fiski – veitingastofu Gerðubergs.

Í Gerðubergssafni Borgarbókasafnsins verður sérstök barnadagskrá þar sem lesið verður úr barnabókum, krakkar fá tækifæri til að æfa jóga og foreldrar og börn fá sýnikennslu í nuddi. Í bókasafninu verður einnig sýning á bókum þeirra kvenna sem hlotið hafa Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna, síðustu ár.

Nánar á vef Gerðubergs.

INNskráning

Nýskráning