Skáldsagan Frönsk svíta eftir Irène Némirovsky kom fyrst út í París árið 2004, sextíu og tveimur árum eftir að höfundurinn lést í útrýmingarbúðum nasista í Auschwitz í júlí 1942, og hefur farið sigurför um heiminn. Margar skáldsagna hennar hafa verið endurútgefnar síðan, en miðvikudaginn 9. nóvember koma öll verk hennar út í París í fyrsta sinn, í tveimur bindum eða alls um 4000 blaðsíður. Hér er um að ræða texta frá því hún var að byrja að skrifa, blaðagreinar, smásögur, kvikmyndahandrit og skáldsögur. Þarna birtist talsvert efni eftir hana í fyrsta sinn, en auk þess prýða útgáfuna svipmyndir úr ævi Irène Némirovsky.
Þessi myndarlega útgáfa verður síðan undirstaða þýðinga á verkum eftir Irène Némirovsky í framtíðinni um heim allan. Dóttir Némirovsky, Denise Epstein, skrifar aðfararorð en Olivier Philipponnat skrifar formála og kynnir hvert verk fyrir sig, en þau Epstein og Philipponat komu hingað til lands í september s.l. þegar Frönsk svíta kom út á íslensku.