Herra Kitli

Allt er fertugum fært

Hinir síungu herramenn fagna fertugsafmæli sínu í ár og ungfrúrnar geðþekku eru þrítugar á árinu. Forlagið heiðrar þau sómasystkin á þessum tímamótum með útgáfu á fimm nýjum bókum, Herra Skellur og riddarinn, Ungfrú Prinsessa, Herra Góður, Ungfrú Ágæt og prinsessan og Ungfrú Afmælis. Sem fyrr er það Guðni Kolbeinsson sem snýr sögunum á íslensku.

Þá er nýlega komin út bókin Lærðu að teikna herramenn sem geymir nákvæmar teiknileiðbeiningar, stensla, límmiða, teikniblokk og heilræði, sum gagnleg og önnur ekki – eiginlega er það eina sem þarf að hafa áhyggjur af hvort löngu handleggirnir hans herra Kitla komist fyrir á blaðinu!

Það var appelsínuguli sprelligosinn Herra Kitli sem fyrstur þeirra systkina kvaddi sér hljóðs árið 1971. Skapari þeirra, Robert Hargreaves, hafði þá um nokkurt skeið gengið með sögu þessa heiðursmanns á milli útgefenda en hlotið dræmar viðtökur. Loks fannst þó einn sem var tilbúinn til að taka Herra Kitla upp á arma sína og bræður hans fylgdu fast á eftir. Þeir urðu brátt eftirlæti heimsins og það sama mátti segja um ungfrúrnar sem komu fram á sjónarsviðið áratug síðar, 1981. Ungfrú Ráðrík reið á vaðið og síðan kom hver ungfrúin á fætur annarri.

Herramennirnir og ungfrúrnar hafa á undanförnum árum sýnt sig í að eiga við okkur margvísleg erindi – öll brýn! Og það bendir svo sem ekkert til annars en að svo verði áfram um ókomna tíð …

INNskráning

Nýskráning