Sofie Oksanen

Hreinsun í Þjóðleikhúsinu

Þjóðleikhúsið frumsýndi nýlega Hreinsun eftir Sofie Oksanen en sagan, sem kom út hjá Máli og menningu í fyrra, hefur hvarvetna hlotið mikið lof og margvíslegar viðurkenningar, m.a. Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs.

Hreinsun segir frá því er Aliide finnur unga konu, Zöru, hrakta og hrjáða í garðinum sínum. Brátt kemur í ljós að fundur þeirra er ekki einber tilviljun. Yfir sögu niðurlægðra og kúgaðra einstaklinganna rís saga heillar þjóðar undir harðstjórn og kúgun. Margrét Helga Jóhannsdóttir og Arnbjörg Hlíf Valsdóttir fara með hlutverk þeirra Aliide og Zöru en Stefán Jónsson annast leikstjórn.

Hreinsun var ein allraumtalaðasta skáldsagan á íslenskum bókamarkaði í fyrra en nýlega kom fyrsta bók Oksanen, Kýr Stalíns, út í vandaðri þýðingu Sigurðar Karlssonar, sem einnig þýddi Hreinsun.

Nánar um uppfærsluna á vef Þjóðleikhússins.

INNskráning

Nýskráning