claude levi-strauss

Regnskógabeltin raunamæddu í Háskóla Íslands

Málþing um Regnskógabeltið raunamædda verður haldið í Háskóla Íslands í tilefni af þýðingu Péturs Gunnarssonar á meistaravirki Claude Lévi-Strauss. Málþingið verður fimmtudaginn 27. okt.  kl. 16 – 18 í stofu HT 103 í Háskóla Íslands (Háskólatorg, neðri hæð).



Dagskrá:
1.       Torfi H. Tulinius: Claude Lévi-Strauss og franskt menntalíf á 20. öld.
2.       Sigríður Dúna Kristmundsdóttir: Mannfræðingurinn Claude Lévi-Strauss.
3.       Pétur Gunnarsson les upp úr þýðingu sinni á Regnskógabeltinu raunamædda
4.       Vincent Debaene: Mannfræði og bókmenntir í Frakklandi á 20. öld.
Vincent Debaene er prófessor í frönskum bókmenntum við Columbia University. Hann hefur skrifað mikið um verk Claude Lévi-Strauss og stóð fyrir nýlegri útgáfu á verkum hans í tilefni af aldarafmæli hins merka fræðimanns.
Málþingið er haldið í samvinnu Alliance française, Hugvísindasviðs og námsbrautar í mannfræði við Háskóla Íslands.



INNskráning

Nýskráning