Á laugardag, 22. október, verður haldið áfram að fagna 50 ára afmæli Bókabúðar Máls og menningar. Einar Már Guðmundsson og Bjartmar Guðlaugsson koma fram vopnaðir sögum, ljóðum, gítar, söngvum og upplestri úr nýjustu bók Einars, Bankastræti núll.
Rithöfundurinn Stefán Máni mun koma fram og lesa upp úr glænýrri bók sinni, Feigð. Feigð er tíunda skáldsaga Stefáns sem áður hefur sent frá meistaraverk á borð við Svartur á leik og Skipið. Aðalsöguhetjan í Feigð kom einnig fram í síðustu bók höfundar, Hyldýpi sem kom út 2009.
Boðið verður upp á kaffi og kleinur og búast má við tilboði á bókunum þennan dag. Einnig er hægt að skoða afmælisljósmyndasýninguna sem hangir uppi víðsvegar um verslunina.
Allir velkomnir.