Það eru eingöngu þrjár vikur síðan bókin Gamlinginn sem skreið út um gluggann og hvarf kom út á Íslandi og nú þegar er búið að prenta bókina þrisvar sinnum. Á þessum þremur vikum hafa 7000 bækur verið seldar af lager enda virðast Íslendingar rífa þessa gleðisprengju í sig og hefur bókin vermt efsta sæti metsölulista síðan hún kom út. Það veitir svo sem ekki af í skammdeginu að lesa eitthvað skemmtilegt sem kætir og bætir geðheilsuna. Eða eins og Páll Baldvin orðaði það í Kiljunni: „Maður hlær upphátt og lengi og hátt, og það kemur mjög sjaldan fyrir.“