Fjallað verður um Vigdísi Grímsdóttur á ritþingi Gerðubergs laugardaginn 5. nóvember. Á þingunum er leitast við að veita persónulega innsýn í líf og feril íslenskra rithöfunda. Stjórnandi ritþingsins er Jórunn Sigurðardóttir og spyrlar þau Hrafn Jökulsson og Þóra Sigríður Ingólfsdóttir.
Í tilefni ritþingsins eru sýndar myndir í kaffihúsi Gerðubergs, en það eru myndir sem Vigdís málaði samhliða skrifum á nýjustu skáldsögu sinni Trúir þú á töfra? sem kemur út á næstunni. Einnig verður boðið upp á bókmenntanámskeið í Gerðubergi þar sem fjallað verður um höfundarverk Vigdísar.
Nánari upplýsingar um dagskrá Gerðubergs er að finna hér.