Í dag kom út ný unglingabók eftir Arndísi Þórarinsdóttur og er þetta jafnframt fyrsta skáldsaga þessarar ungu efnilegu skáldkonu. Játningar mjólkurfernuskálds fjallar um Höllu sem býr með tveimur pöbbum sínum, er algjör fyrirmyndarnemandi með háar einkunnir og fékk meira að segja birt ljóð á mjólkurfernu!
Einn daginn snýst tilvera hennar við þegar hún er gripin með dóp í skólanum. Í kjölfarið þarf hún að skipta um skóla og kemst að því að slæmt orðspor hennar er á allra vörum áður en byrjar í skólanum. Hvað gera góðar stelpur þá? Reyna að sanna sig eða leika með?
Stórskemmtileg bók sem fjallar um unglingsárin og allt það skemmtilega og það erfiða sem þeim fylgja!