Tomas Tranströmer

Nóbelsverðlaunin tilkynnt í gær

Höfuðskáld Svía, Tomas Tranströmer, hlaut í gær Nóbelsverðlaunin í bókmenntum og kom fáum á óvart. Tomas fæddist árið 1931 og hefur áður hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga, m.a. Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs og norræn verðlaun Sænsku akademíunnar. Hann hefur lengi verið eitt mest lesna norræna ljóðskáld samtímans. Árið 1990 lamaðist hann að hluta og missti að mestu málið, og menn biðu spenntir eftir því hvort skáldgáfa hans hefði beðið hnekki við áfallið. En ljóðabókin Sorgegondolen, sem kom út árið 1996, sýndi að Tomas hafði engu tapað þar. Bókinni var tekið með kostum og kynjum og er ein mest selda ljóðabók allra tíma í Svíþjóð. Árið 2001 birtist hún í íslenskum búningi eins fremsta þýðanda okkar daga, Ingibjargar Haraldsdóttur, og ber titilinn Sorgargondóll. Svo vel vill til að enn er hægt að fá eintak af þeirri góðu bók.

INNskráning

Nýskráning