Fjórar nýjar kiljur hafa komið út í vikunni. Allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi enda eru bækurnar ólíkar og hreinlega hægt að velja sér bók eftir því hvaða skapi maður er í.
Ef maður er í stuði fyrir eðalglæpasögu þá er Órólegi maðurinn rétta bókin. Hér er að finna enn eina perluna um lögreglufulltrúann Kurt Wallander sem leysir sakamál en tekst einnig á við erfiðar tilfinningar. Þeir sem sækja eftir skemmtun og gleði ættu að lesa Gamlingjann sem skreið út um gluggann og hvarf. Þessi bók er ærslafull og drepfyndin – fólk leggur hana ekki frá sér fyrr en hún er búin! Hroki og hleypidómar er algjört konfekt fyrir alla lesendur og aðdáendur góðra ástarsagna. Klassík sem stenst tímans tönn. Meðan enn er glóð er norsk skáldsaga sem fjallar um brennuvarg, tilfinningar, þroska og brjálæði. Þetta er bæði næm og nærgöngul skáldsaga sem lætur engan ósnortinn.
Er nokkuð kominn valkvíði í fólk?