Skáldsaga Jónínu Leósdóttur, Allt fínt … en þú?, er komin út í Þýskalandi og ber þýska titilinn Am liebsten gut. Þýðandi er Tina Flecken og forlagið Kiepenheuer & Witsch gefur bókina út.
Ný bók eftir Jónínu er væntanleg á Íslandi en það er fjörug og spennandi unglingabók sem fjallar m.a. um þunglyndi og önnur viðkvæm mál sem mikilvægt er að unglingar þekki til. Þrátt fyrir að bókin fjalli um háalvarleg málefni tekst Jónínu að gera það á svo léttan og snjallan hátt að bókin er einnig bráðskemmtileg og þrælfyndin.