Bryndís Björgvinsdóttir

Flugufjör á Íslensku barnabókaverðlaununum

Í dag voru Íslensku barnabókaverðlaunin veitt við hátíðlega athöfn í Rimaskóla. Höfundurinn sem fékk verðlaunin heitir Bryndís Björgvinsdóttir og verðlaunabókin heitir Flugan sem stöðvaði stríðið. Það var létt og skemmtilegt andrúmsloft á athöfninni, salurinn var fullur af börnum úr 7. bekk Rimaskóla og fengu gestir að njóta tónlistaratriða flutt af nemendum skólans. Bryndís Björgvinsdóttir sagði salnum frá því hvernig hugmyndin að sögunni kviknaði og þróaðist síðustu fimm árin. Aðalsöguhetjur bókarinnar eru ósköp venjulegar húsflugur sem að fæstir gefa mikinn gaum. En það kemur á daginn að maður getur haft mikil áhrif þótt maður sé pínulítill.

Forlagið óskar Bryndísi innilega til hamingju með verðlaunabókina fínu!

INNskráning

Nýskráning